Dagskrá veturinn 2026 - 2027

Það er eitthvað alveg sérstakt við það að kunna að sauma.
Að geta lagað uppáhaldsflíkina, breytt gamla jakkanum í eitthvað nýtt eða skapað sitt eigið – alveg eftir eigin höfði. Þegar við lærum grunninn, opnast heimur möguleika: minni sóun, meiri sköpun og meiri ánægja af fataskápnum okkar.

Námskeiðin sem haldin verða í vetur eru fyrir öll þau sem langar að opna hugann gagnvart möguleikum þess sem fataskápurinn hefur að geyma:

- í október verða tvenns konar námskeið á Akureyri

Nánar hér þegar nær dregur

- í janúar verður árlegt staðarnámskeið í grunnatriðum fatabreytinga í Ljósinu - aðeins fyrir notendur Ljóssins

- í febrúar verður staðarnámskeið í grunnatriðum fatabreytinga

Nánar hér þegar nær dregur

- í apríl verður staðarnámskeið í breytingum á jakkafötum

Nánar hér þegar nær dregur

Öll opin námskeið eru 9 - 15 tíma námskeið, tekin á einni viku.

Skapað úr Skápnum, áskriftarsamfélagið á netinum heldur að sjálfsögðu áfram starfsemi. Opið er fyrir aðgang í Skápinn sjaldan og þá í stuttan tíma.

Hérna geturðu skráð þig á biðlista

Hæhæ, ég heiti Sigga

og ég hef verið þar sem þú ert!

Hver er ég? Ég heiti Sigríður Tryggvadóttir og er alltaf kölluð Sigga. Ég á og rek Saumaheimur Siggu, er með yfir 20 ára reynslu í saumaskap og hef síðustu ár sérhæft mig í endurnýtingu á textíl. Ég held námskeið í saumaskap og fatabreytingum og veiti stuðning og ráðgjöf þeim sem vilja finna fjársjóðinn í fataskápnum og byggja sér upp sjálfbærari fatastíl.

Copyright 2025, HandS slf.

Saumaheimur Siggu